Raða eftir:
Pikler þríhyrningur með veggfestingu og rennibraut, fjölnota leikstöð sem örvar hreyfiþroska, styrk og sköpunargleði barna á öruggan og skemmtilegan hátt.
Burðarþol:
50kg
Stærð sem pikler:
Hæð: 68 cm
Lengd: 88 cm
Breidd: 78,5 cm
Sem klifurveggur:
Hæð: 150 cm
Breidd: 78,5 cm
Festing (armur til veggjar):
Breidd: 66,5 cm
Fjarlægð frá vegg: 42 cm
Uppsetning:
Festist auðveldlega á vegg með sérhönnuðum veggfestingum (fylgja með). Þríhyrningurinn getur verið frístandandi eða festur upp á vegg, allt eftir því hvernig þú vilt nýta leikrýmið.
Umhirða:
Þurrkaðu með rökum klút og léttu hreinsiefni. Þurrkaðu eftir með mjúkum og hreinum klút.
Efni: FSC vottaður Birkikrossviður/MDF
Vottun: Varan er með CE-vottun og uppfyllir kröfur evrópska öryggisstaðalsins EN 71-3
Montessori fataskápurinn frá Duck Woodworks er falleg og hagnýt lausn fyrir barnaherbergið. Hann hvetur börn til að velja föt sjálf, halda skipulagi og þjálfa sjálfstæði með leikandi hætti.
Skápurinn er með opnu fatahengi, þremur opnum hillum. Hannaður með öryggi, endingu og fallega hönnun í huga.
Efni og vottanir:
• Framleitt úr FSC vottuðum birkikrossvið og MDF
• Barnvænt lakk og málning, uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðal
Ytri mál fataskápsins:
• Breidd: 77 cm
• Hæð: 114 cm
• Dýpt: 29,5 cm
Skúffur (hver um sig):
• Breidd: 30 cm
• Hæð: 18 cm
• Dýpt: 27 cm
2in1 Cube settið er fjölhæf og snjöll Montessori lausn sem vex með barninu þínu. Með einfaldri hreyfingu er hægt að snúa kubbnum og breyta honum í stól, borð eða tvo mismunandi háa stóla, fullkomið fyrir leik, lærdóm og daglegt líf.
Settið er hannað með sjálfstæði barnsins í huga og styður við Montessori nálgun þar sem barnið fær að kanna, læra og taka þátt á eigin forsendum. Hvort sem það er að teikna, lesa, borða eða leika sér, þá aðlagast Cube settið þörfum barnsins á hverju stigi.
Slétt yfirborð og mjúkar brúnir tryggja öryggi, á meðan náttúruleg viðaráferð gefur hlýlegt og fallegt útlit sem passar inn á hvert heimili.
Stærðir:
- Breidd: 38 cm
- Hæð: 38 cm
- Dýpt: 38 cm
Nánari upplýsingar:
Efni: Birki krossviður / MDF
FSC vottað efni
Barnvæn yfirborðsmeðferð (uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla)
Ósamsett, einfalt og fljótlegt að setja saman (leiðbeiningar fylgja)
ZigZag Húsið er einstaklega snjöll og falleg lausn fyrir leiktímann, tilbúið á sekúndum og hægt að brjóta saman á augabragði þegar leiknum líkur. Það passar í hvaða rými sem er og hentar sérstaklega vel fyrir smærri heimili eða þá sem vilja halda leiksvæðinu snyrtilegu.
Stærðir þegar samanbrotið:
Hæð: 74 cm
Breidd: 40 cm
Dýpt: 1 cm
Allt húsið: 200,5 cm
ZigZag húsið samanstendur af 5 viðarplötum og kemur fullsamsett. Ekkert aukahlutabrask – bara leikgleði og ævintýri á augabragði!
Efni: FSC vottaður Birkikrossviður/MDF
Vottun: Varan er með CE-vottun og uppfyllir kröfur evrópska öryggisstaðalsins EN 71-3
Rólan er úr vönduðum beyki við og sterku efni, með mjúkum tvílita púða sem hægt er að snúa við og taka úr eftir þörfum. Þannig getur rólan vaxið með barninu og aðlagast mismunandi þroskastigum.
Öryggi og þægindi eru í fyrirrúmi:
- Fjórar stöðugar velti-varnir
- Stillanlegt öryggisbelti
- Stillanleg reipi til að aðlaga hæð
- Burðarþol, 60kg
Rólan styður einnig við jafnvægisskyn og hreyfiþroska barnsins á leikandi hátt.
Falleg og tímalaus róla sem passar inn á öll heimili.
Spilið inniheldur 16 viðarílát (8 pör) sem gefa frá sér mismunandi hljóð þegar þeim er hrist. Markmiðið er að hlusta vel og para saman ílát sem gefa sama hljóð.
Ílátin eru fyllt með mismunandi efnum, kúlum og perlum, sem skapa fjölbreytt hljóð og gera leikinn bæði spennandi og lærdómsríkan. Gluggi á botni ílátanna gerir einnig kleift að sjá innihaldið og spila leikinn sjónrænt.
- Leikurinn hjálpar börnum að:
- Þróar heyrnarskyn
- Styrkir minni og einbeitingu
- Æfir samhæfingu handa og augna
- Þjálfar hlustun og takt
Hentar bæði einstaklingsleik eða fjölskylduspil og er einnig vinsælt í þroskaþjálfun og iðjuþjálfun.
Bómullarpoki fylgir með.
Lúdó Prinsessu er ævintýralegt og barnvænt borðspil! Leikurinn kemur með litríkum prinsessu úr við.
Fullkominn fyrir skemmtilegar leikstundir með fjölskyldunni.
Leikborðið er samanbrjótanlegt og hægt að loka með smellu, frábært í ferðalagið eða til að halda skipulagi!
- 4 leikmenn
- Leikborð úr við
- Innbyggð geymsla fyrir leikhluti
- Örvar talningu og þolinmæði
- Fullkomið ferðaleikfang fyrir fjölskyldur á ferðinni
🎁 Tilvalin gjöf fyrir 4 ára og eldri, bæði falleg og fræðandi!
Lína er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Lína er er í sætum kjól sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Leó er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Leó er er í sætum smekkbuxum sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Mjúk og falleg spiladós fyrir börn sem spilar róandi vögguvísu og hjálpar börnum að róa sig fyrir svefn. Spiladósin er úr mjúku muslin efni sem hefur skemmtilega áferð sem litlar hendur geta snert og fundið. Með því að draga í snúruna spilast róandi og notaleg vögguvísa.
- Mjúk spiladós í fallegri ljónahönnun
- Spilar róandi vögguvísu þegar dregið er í snúruna
- Hjálpar barninu að róa sig fyrir svefn
- Mjúkt muslin efni með skemmtilegri áferð
- Lykkja til að hengja á rúm, vagn eða skiptiborð
- Falleg skreyting í barnaherbergi
- Hentar vel sem gjöf við fæðingu eða skírn
Skemmtilegur og fræðandi Montessori flokkunarleikur úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að æfa fínhreyfingar, einbeitingu og rökhugsun á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur 5 litríkar skálar, 15 flokkunarhluti og tvær viðartangir sem börn nota til að grípa og flokka form. Hlutirnir eru í þremur mismunandi formum, hringur, þríhyrningur og stjarna. Hægt er að flokka þá eftir lit, formi eða fjölda.
Með því að nota tangirnar þjálfa börn samhæfingu handa og augna, gripstyrk og nákvæmni, á sama tíma og þau læra liti, form og fyrstu stærðfræðihugtök.
Leikurinn hentar vel bæði heima, í leikskólum og í þroskaþjálfun og býður upp á fjölbreyttar leiðir til að leika og læra.
- 5 litríkar skálar
- 15 flokkunarhlutir (hringir, þríhyrningar og stjörnur)
- 2 viðartangir til að grípa hlutina
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna
- Kennir liti, form og talningu
- Styður rökhugsun, einbeitingu og þolinmæði
- FSC® 100% vottaður viður
Fallegur og vandaður Montessori flokkunarleikur úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að læra liti, röðun og samhæfingu á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur viðarplötu með 9 litahólfum og 14 litríkum viðarkúlum sem hægt er að flokka eftir lit, stafla saman eða raða í pýramída. Börn geta prófað mismunandi samsetningar og þannig þróað bæði sköpun, rökhugsun og fínhreyfingar.
Kúlurnar eru sléttar og þægilegar í höndunum, sem gerir leikinn bæði öruggan og skemmtilegan fyrir litlar hendur.
- Montessori flokkunar- og stöflunarleikur
- 14 viðarkúlur í fallegum litum
- Plata með 9 litahólfum
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu
- Kennir liti, röðun og talningu
- Styður skapandi leik og tilraunir
- FSC® 100% vottaður viður
Skemmtilegur og fjölnota skynjunarbangsi fyrir ungbörn sem hvetur til leikja, uppgötvunar og skynjunar frá fyrstu mánuðum. Bangsinn er úr mjúku musselin efni með mismunandi áferðum sem örva snertiskyn barnsins.
Hann er með innbyggt skrölt, spegil og naghring, sem hjálpar barninu að kanna hljóð, snertingu og hreyfingu á leikandi hátt. Með praktískri festingu er auðvelt að hengja hann á vagn, bílstól eða leikgrind, þannig að hann fylgi barninu hvert sem er.
- Innbyggt skrölt sem örvar heyrnarskyn
- Naghringur sem getur róað góma
- Spegill sem vekur forvitni barnsins
- Mismunandi efnisáferðir sem örva snertiskyn
- Hægt að hengja á vagn, bílstól eða leikboga
Krúttlegur og mjúkur bangsi fyrir ungbörn sem veitir hlýju, öryggi og ró frá fyrstu mánuðum. Litla ljónið er búið til úr mjúku musselin efni sem er notalegt að snerta og örvar skynjun barnsins.
Bangsinn er hannaður fyrir litlar hendur sem auðvelt er að grípa, knúsa og halda á. Tryggur vinur barnsins, hvort sem er í rúminu, vagninum eða á ferðinni.
- Mjúkur bangsi fyrir ungbörn
- Musselin efni sem örvar snertiskyn
- Hjálpar barninu að róast og finna öryggi
- Styður grip, snertingu og fyrstu skynjun
- Fullkominn í vagn, rúm eða sem svefnfélagi
Mjúkur og notalegur kúruklútur fyrir ungbörn sem veitir ró, öryggi og þægindi frá fyrstu mánuðum. Klúturinn er hannaður með krúttlegu ljóni og mjúku musselin efni sem örvar snertiskyn barnsins á náttúrulegan hátt.
Þægileg stærð gerir hann fullkominn fyrir litlar barnahendur og hvetur til að grípa, snerta og kanna. Kúruklúturinn getur hjálpað barninu að slaka á og sofna, hvort sem er í vagninum, rúminu eða á ferðinni.
- Mjúkur kúruklútur fyrir ungbörn
- Mjúkt musselin efni sem örvar skynjun
- Hjálpar barninu að róast og sofna
- Styður grip, snertingu og skynjun
- Hentar vel í vagn, rúm eða bílstól
Mjúkt og krúttlegt gripleikfang fyrir ungbörn sem hvetur til leikja og uppgötvunar frá fyrstu mánuðum. Litla ljónið er úr mjúku efni með innbyggðu skrölti sem örvar heyrn og forvitni barnsins.
Lögunin er hönnuð sérstaklega fyrir litlar barnahendur og hjálpar barninu að æfa gripviðbrögð, fínhreyfingar og samhæfingu á öruggan og skemmtilegan hátt.
- Mjúkt gripleikfang fyrir ungbörn
- Innbyggt skrölt sem örvar heyrn
- Styður fínhreyfingar og gripþroska
- Hentar vel í vagn, bílstól eða heima
- Mjúkt og barnvænt efni
Mjúkt og öruggt púsl úr BPA-lausu sílíkon sem hentar fullkomlega í vatni eða leik. Settið er úr úr 100% Food Grade sílíkoni i sem er lyktarlaust og eiturefnalaust.
Aldur: 12 mánaða+
Efni: BPA-laust, mjúkt sílíkon (food grade)
Öflugur slökkviliðsbíll úr hágæða við, fullkominn fyrir alla litla hetjur! Stiginn snýst 360°, er teygjanlegur og með öryggisgrindum og hreyfanlegri körfu. Gúmmíhjól tryggja hljóðlátan og mjúkan akstur, og fylgihlutir eins og slökkviliðsmaður, keilur og eldar gera leikinn enn skemmtilegri. Fullkomið leikfang til að æfa samhæfingu, hreyfifærni og sköpun í björgunarleik.
Stærð
Bíll: 42 x 17 x 20cm
Aldur: 24mán+
Lyftari úr sterkum við!
Lyftarinn fer auðveldlega upp og niður með snúningshjóli og vörubrettið fylgir með. Gúmmíhjól tryggja mjúkan og hljóðlátan akstur, endingargóð hönnun býður upp á endalausan ímyndunarleik og þróun fínhreyfinga.
Stærð: ca. 24 × 7 × 17 cm
Vörubretti: ca. 11 × 8 × 2 cm
Aldur: 24 mánaða+
Myndaspjöld, Frumskógurinn frá Wee Gallery eru fullkomin fyrsta skynörvunin fyrir litlu augun.
Þessi hákontrast spjöld eru sérhönnuð fyrir ungabörn sem byrja að sjá svart og hvítt fyrst. Spjöldin laða að athygli, örva sjónskynjun og styrkja einbeitingu.
- Dýramynstur
- Hver hlið hefur svarthvítt tvöfalt mynstur
- Þykk, slitsterk og með mjúkum hornum, örugg fyrir litlar hendur
- Handteiknuð og prentuð með soja-bleki
Má þurrka af með rökum klút
Stærð: 5x7" (12,7 x 17,8 cm)
Fyrir 0 mánaða og eldri
FSC vottaður pappír
CE merkt
Eiturefnalaust, prófað fyrir öryggi
Fullkomin viðbót við Tummy Time Gallery eða sem stakur leikur!
Skynkubbur, Gæludýrin frá Wee Gallery er mjúkur og örvandi leikfélagi fyrir minnstu börnin. Kubburinn er hannaður til að styðja við snertingu, sjón og gripþroska, án rafhlaðna eða hljóða!
- Svart-hvítar andstæður og stílhrein dýramynstur
- Mjúk áferð og brakhljóð sem örva snertingu
- Stuðlar að fínhreyfingu og skynþroska
- Myndir af skógardýrum
- Fyrir 0+ mánaða
- Úr 100% lífrænni bómull
- Fylling: Non-toxic foam
- GOTS & OEKO-TEX vottuð framleiðsla
- Framleitt á Indlandi
Aðeins yfirborðshreinsun
Falleg og hagnýt gjöf fyrir nýbura, passar bæði í leik og á ferð!
Kennir jafnvægi og rökhugsun í gegnum leik!
Fallegur og fræðandi jafnvægisleikur úr FSC® vottuðum við, hannaður í anda Montessori-aðferðarinnar. Leikurinn samanstendur af jafnvægisbretti með númeruðum hólfum og 16 lituðum viðarkubbum sem eru misþungir og misstórir. Með því að stafla kubbunum samkvæmt meðfylgjandi kortum, eða jafnvel í frjálsri tilraun, læra börn um hlutföll, þyngdarpunkt og jafnvægi.
Frábært til að efla fínhreyfingar, samhæfingu augna og handa, þolinmæði og rökhugsun. Hentar bæði heima, í leikskóla og í iðjuþjálfun.
Innifalið:
16x Viðarkubbar
1x Jafnvægisbretti
6x Kennslukort
Ráðlagður aldur: 3ára +
Myndaspjöld, Regnskógurinn frá Wee Gallery eru fullkomin fyrsta skynörvunin fyrir litlu augun.
Þessi hákontrast spjöld eru sérhönnuð fyrir ungabörn sem byrja að sjá svart og hvítt fyrst. Spjöldin laða að athygli, örva sjónskynjun og styrkja einbeitingu.
- Dýramynstur
- Hver hlið hefur svarthvítt tvöfalt mynstur
- Þykk, slitsterk og með mjúkum hornum, örugg fyrir litlar hendur
- Handteiknuð og prentuð með soja-bleki
Má þurrka af með rökum klút
Stærð: 5x7" (12,7 x 17,8 cm)
Fyrir 0 mánaða og eldri
FSC vottaður pappír
CE merkt
Eiturefnalaust, prófað fyrir öryggi
Fullkomin viðbót við Tummy Time Gallery eða sem stakur leikur!
Hvetur börn til sjálfstæðis og heldur skipulagi í forstofu eða barnaherbergi. Þetta fallega barnafatahengi er hannað fyrir yngri meðlimi heimilisins og gerir þeim kleift að ná sjálf í úlpuna, jakkann og skóna, setja í hillur eða hengja upp töskuna sína.
- Hjálpar börnum að æfa sjálfstæði og skipulag
- Hillur, krókar og lítil sessa sem auðveldar að komast í skó
- Tímalaus og stílhrein hönnun sem passar við flest heimili
- FSC vottaður birkikrossviður og barnvænt lakk
- CE vottað og samræmist EN 71-3 öryggisstaðli
Aldur: 3–9 ára
Stærð (cm): 115 x 39 x 37
Þyngd: 7,4 kg
Þrífa með rökum klút og þurrka með mjúkum klút
Veggfestingar fylgja með!
Naggrís úr við – fallegt dráttardýr sem hvetur til hreyfingar og leikgleði!
Gerðu pláss – hér kemur nýi besti vinur barnsins þíns! Þessi sæti naggrís úr náttúrulegum við er frábært dráttarleikfang fyrir þau yngstu. Hann hvetur börn til að skríða, taka fyrstu skrefin og þroska hreyfifærni sína á meðan þau hafa gaman.
Hvetur til hreyfingar
Þjálfar grófhreyfingar og jafnvægi
Hljóðlát gúmmíhjól sem vernda gólf
Frábær gjöf fyrir börn
Gert úr endingargóðum, náttúrulegum við
Vinalegt bros og hlýleg hönnun
Snúran er 60 cm löng og auðveld fyrir lítil börn að toga dýrið með sér í ævintýri innanhúss. Fullkomin viðbót við tréleikföng heimilisins og ómissandi fyrir dýravini í mótun!
Upplýsingar:
• Stærð: ca. 15 x 6 x 11 cm
• Efni: Viður og gúmmíhjól
• Aldur: 12 mánaða og eldri
• Vörumerki: Small Foot
• Vottun: CE votað
Fallegur kökustandur úr sterkum við
Búðu til þínar eigin bollakökur! Mismunandi bragðtegundir, rjómatoppur, ávextir og kökustandur.
-Þjálfar fínhreyfingar
-Æfir samhæfingu handa & augna
-Stuðlar að félagsfærni
Fullkomið í hlutverkaleikinn.
Nú geta börnin boðið böngsunum og dúkkunum upp á köku
Stærð:
Kökustandur - 28 x 18cm
Kökur - 4 x 5cm
Ráðlagður aldur:
3ára+
