Örugg hönnun

Uppfyllir evrópska öryggisstöðulinn EN 71-3 og er CE vottað

Sjálfbær framleiðsla

Með áherslu á náttúruleg efni og lágmarks sóun.

Sterk gildi

Leikföng sem örva ímyndunarafl, fínhreyfingar, rökhugsun og félagsfærni.

Þroskasett, 7-9 mánaða

14,990 kr

Vandað þroskasett með 6 leikföngum sem eru sérstaklega valin fyrir börn á aldrinum 7–9 mánaða. Á þessu þroskaskeiði verða börn sífellt forvitnari, endurtaka athafnir og byrja að átta sig á orsök og afleiðingu.

Leikföngin í settinu örva mismunandi þroskaþætti í gegnum leik, meðal annars fínhreyfingar, samhæfingu handa og augna, sjón og heyrnarskyn, einbeitingu og skilning á því að hlutir haldi áfram að vera til þótt þeir sjáist ekki.

Inniheldur:

  • Snúningstromla
    Kennir orsök og afleiðingu, örvar sjón og hreyfifærni.
  • Kúlubox með 2 viðarkúlum
    Þjálfar markvissar hreyfingar, einbeitingu og skilning á varanleika hluta
  • Spegilpúsl með handfangi
    Örvar sjónskyn, samhæfingu handa og augna og fyrstu kynni af rýmnisskynjun
  • 2 hljóðkubbar
     Örva heyrn og hvetja barnið til að bera saman mismunandi hljóð
  • Mjúkur skynjunarkubbur með 5 tauklútum
    Hvetur til grips, togs og könnunar á mismunandi áferðum
  • Skynjunarrör
    Hetur barnið til að fylgjast með, hlusta og bera saman hreyfingar og hljóð
  • Bæklingur með leikhugmyndum og upplýsingum um þroska barna

Öll viðarleikföngin eru úr FSC® 100% vottuðum við. Settið er því frábær leið til að velja aldurshæf og þroskandi leikföng fyrir fyrstu mánuðina og einstaklega falleg og nytsamleg gjöf.

Aldur: 7–9 mánaða
Stærð: ca. 29 × 12 × 12 cm
Efni: Viður, textíll, filt og gerviefni
Vörumerki: small foot

Við veitum 14 daga  skila/skiptifrest á vörum gegn framvísun greiðslukvittunar eða gjafamiða. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð þá má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru.

Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni í aðra vöru er gefin út rafræn inneignarnóta eftir að White Noise hefur staðfest móttöku á vöru.

Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á whitenoise@wnoise.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum í gegnum vöruskil Dropp HÉR gegn vægu gjaldi.
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

14,990 kr

Barn að leika með viðarleiköng frá SmallFoot

ÞROSKANDI & SKAPANDI

SMALL FOOT

Vönduð viðarleikföng sem sameina sköpun, þroska og leikgleði.
Hönnuð af ást í Þýskalandi með öryggi og sjálfbærni í fyrirrúmi.