Raða eftir:
Dráttardýr úr FSC® vottuðum við
Fyrstu skrefin verða enn skemmtilegri með þessu fallega tígrisdýri.
Tígrinn er sveigjanlegur og hreyfist líflega þegar hann er dreginn, með mjúkhúðuðum dekkjum sem rúlla hljóðlega á öllum gólfum. Þetta trausta leikfang styður við hreyfiþroska og samhæfingu, og gleður lítil dýravin með hlýlegri hönnun og glaðlegu andliti.
Stærð: ca. 20 x 9 x 14 cm
Ráðlagður aldur: 12 mánaða og eldri
Verkfærabakpoki, Stórt verkfærasett í bakpoka
✨ Tilnefnt til Þýska leikfangaverðlaunsins 2025!
Fyrir litla smiðinn sem elskar að byggja og leika!
Þessi litríki og þægilegi bakpoki geymir allt sem þarf til að smíða, verkfæri, skrúfur, tannhjól, gormar og tréplötur í ýmsum stærðum og lögunum.
8 vönduð tréverkfæri: hamar, skrúfjárn, sög, plötutöng, skrúflykill, málband, hornrétta og hallarmál.
Mikið af fylgihlutum: boltar, rær, tannhjól, millistykki og tengiplötur.
Hægt að smíða: bíl, þyrlu, vindmyllu og flugvél.
Bakpoki með stillanlegum ólum, þægilegur með góðu geymsluplássi.
Frábær leikur fyrir hlutverkaleik, sköpun og fínhreyfingar.
Ráðlagður aldur: 3 ára +
Leiðbeiningar fylgja!
Þetta fallega og vandaða viðarpúsl frá Small Foot sameinar hefðbundið púsluspil og minnisleik á skapandi hátt. Sex litrík risaeðluegg leyna dýrum sem þarf að para saman við rétta holu. Allar púslbitarnar eru með þægilegum griphnúð sem hentar litlum höndum.
Upplýsingar
- Stærð: ca. 18 x 18 x 3 cm
- Stærð á dýrum: ca. 4 x 0,5 x 4,5 cm
- Efni: FSC®-vottaður viður
- Aldur: 12 mánaða+
- Vörumerki: Small Foot
- Vottanir: FSC® 100% & CE merkt
Hjálparturn: Tryggir barninu öruggan aðgang að eldhúsbekknum
Barnastóll/Matarstóll: Hentar til að borða og leika
Kollur: þegar matarstóllinn er tekinn úr og snúið við
Borð & stóll: Fullkomið fyrir máltíðir, föndur og leik
Fjórar lausnir í einni vöru!
Þessi fjölnota hjálparturn er ekki bara venjulegur eldhústurn sem umbreytist í borð og bekk, hann virkar einnig sem matarstóll og stigapallur. Stólahlutinn er hannaður þannig að hægt er að snúa honum á hvolf og nota sem stigpall fyrir börn!
Stærð sem hjálparturn:
• Hæð: 88 cm
• Breidd: 40 cm
• Fyrsta þrep: 25.5 cm frá gólfi
• Pallur: 45.5 cm frá gólfi
Stærð sem matarstóll:
• Hæð: 26 cm
• Breidd: 37 cm
• Lengd: 35.5 cm
• Borðbreidd: 40.5 cm
• Borðlengd: 30.5 cm
Stærð sem borð & stóll:
• Hæð: 44 cm
• Breidd: 40 cm
• Lengd: 72 cm
Hentar börnum frá 18 mánaða aldri
Vottað efni – FSC-vottaður birkikrossviður með barnvænni húðun
CE-vottað og uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla
⚠️Hjálparturninn er hannaður til notkunar upp að borði eða innréttingu og á aldrei að standa frístandandi.
Varan skal ávallt notuð undir eftirliti fullorðinna.
Notkun á annan hátt en framleiðandi mælir með, þar á meðal að barnið klifri upp „röngu megin“ eða að turninn standi frístandandi, telst ekki örugg notkun og er á ábyrgð notanda.
Skemmtilegt spil úr FSC® 100% vottuðum við sem hægt er að spila einn eða jafnvel með allri fjölskyldunni.
Hver nær flestum samstæðum?
Fallega myndskreytt, fallegur kassi fylgir
Dráttarbíll úr FSC® 100% vottuðum við
Stærð:
19cm X 7cm X 10cm
TIPITOO Jafnvægisslá MIDI
Opinn efniviður
Innblásið af ‘‘open ended‘‘ hugmyndafræðinni og er hannað í samráði við sjúkraþjálfara.
TipiToo hvetur ímundunarafl barna, þróar jafnvægi, samhæfingu og hreyfifærsni.
Fyrir börn sem eru byrjuð að ganga – En frábært fyrir alla fjölskyldumeðlimi!
Meira en leikfang – Ýtir undir líkamlegan þroska og eykur sjálfstraust barnsins.
Jafnvægi - bætir líkamsstöðu, þróar jafnvægi og samhæfingu
Skynjun - mismunandi yfirborð og skynjunarupplifanir.
Fjölbreytni - Möguleiki á að sameina mismunandi sett, stilla erfiðleikastigið og auka fjölbreyttan leiktíma
Mismunandi form - stíginn er hægt að setja í þríhyrning, sikksakk og mörg önnur form
Styður við líkamlegan og andlegan þroska
Tvær hliðar á hverri slá!
TipiToo hefur tvær hliðar, önnur hliðin er slétt á meðan hin hliðin hefur hrjúft yfirborð.
Hvert sett inniheldur:
1x slá með láréttum fræsuðum línum á annarri hliðinni.
Hin hliðin er flöt og er einnig hægt að nota til jafnvægis.
1x reipi til að festa á báðar hliðar.
Á báðum endum eru málmfestingar.
1x slá með punktum á annarri hliðinni.
Hin hliðin er flöt og er einnig hægt að nota til jafnvægis.
Unnið úr birkikrossvið
Lakkað með vatnsbundnu UV lakki eða Ólakkaður
Stærð:
þykkt á slá:
27mm
lengd á slá:
115cm
Montessori púsl með fallegum dýramyndum og spegli úr FSC® vottuðum við.
Örvar fínhreyfingar, samhæfingu augna og handa, litaskyn og þolinmæði!
Inniheldur fjögur mismunandi form með gripi, auðvelt fyrir litlar hendur.
Undir hverju formi leynast glaðlegar dýramyndir af tígrisdýri, krókódíl og hlébarða og einn spegill.
Ráðlagður aldur: 12mánaða+
Þetta fallega skynjunarleikfang fyrir börn og ungabörn er bæði sjón og hljóðörðvandi.
- innblásið af Montessori uppeldisaðferðinni
Stærð:
19 x 5,5cm
Ráðlagður aldur:
6mánaða +
Ótrúlega skemmtilegt spil úr FSC® 100% vottuðum við
-þjálfar fínhreyfingar,
-æfir þolinmæði
-æfir samhæfingu augna & handa
Skemmtilegt spil sem hægt er að spila einn eða jafnvel með allri fjölskyldunni.
Til að gera leikinn aðeins meira krefjandi ef þess er óskað geturðu kastað teningnum til að sjá hvaða egg fær að taka sæti á risaeðlunni næst.
Hver nær að raða flestum eggjum á risaeðluna án þess að hún falli?
Hvað fylgir?
12x egg
1x risaeðla
1x teningur
Ráðlagður aldur: 3ára+
Falleg risaeðla úr FSC® 100% vottuðum við sem hægt er að ýta með sér og með innbyggðu perluvölundarhúsi
Ástúðlega hönnuð vara í skærlitaðri frumskógarhönnun
Inniheldur perluvölundarhús með ýmsum viðarperlum sem renna eftir brautinni
-Styður við fínhreyfingar barna
Fallegt viðarleikfang sem færir hreyfingu inn í barnaherbergið!
Stærð:
15 x 6,5 x 13cm
Ráðlagður aldur:
12 mánaða +
50 ''risaeðlu'' viðarkubbar úr FSC® 100% vottuðum við
-þjálfar fínhreyfingar,
-æfir þolinmæði
-æfir samhæfingu augna & handa
Hægt er að stafla hvert ofan á annað.
Stafla - Telja - Flokka - Jafnvægi
Ýmsar stærðir með ólíkum hornum og ójöfnum hliðum fyrir krefjandi stöflun.
Fullkomin stærð af steinum fyrir litlar hendur.
Innblásið af Montessori aðferðinni, - stuðlar að þróun fínhreyfinga, einbeitingar, þolinmæði og skapandi hugsunar
Einstaklega fallegur órói.
Óróinn er handgerður á Balí.
Óróann er hægt að nota á ýmsa vegu.
Sem dæmi: óróa yfir barnarúmi eða króna yfir ljósaperu, ásamt því að hægt er að gera hann að sínu með mismunandi skeytingu (sjá mynd).
Stærð 70 x 32cm
TIPITOO Jafnvægisslá MINI
Opinn efniviður
Innblásið af ‘‘open ended‘‘ hugmyndafræðinni og er hannað í samráði við sjúkraþjálfara.
TipiToo hvetur ímundunarafl barna, þróar jafnvægi, samhæfingu og hreyfifærsni.
Fyrir börn sem eru byrjuð að ganga – En frábært fyrir alla fjölskyldumeðlimi!
Meira en leikfang – Ýtir undir líkamlegan þroska og eykur sjálfstraust barnsins.
Jafnvægi - bætir líkamsstöðu, þróar jafnvægi og samhæfingu
Skynjun - mismunandi yfirborð og skynjunarupplifanir.
Fjölbreytni - Möguleiki á að sameina mismunandi sett, stilla erfiðleikastigið og auka fjölbreyttan leiktíma
Mismunandi form - stíginn er hægt að setja í þríhyrning, sikksakk og mörg önnur form
Styður við líkamlegan og andlegan þroska
Tvær hliðar á hverri slá!
TipiToo hefur tvær hliðar, önnur hliðin er slétt á meðan hin hliðin hefur hrjúft yfirborð.
Hvert sett inniheldur:
1x slá með láréttum fræsuðum línum á annarri hliðinni.
Hin hliðin er flöt og er einnig hægt að nota til jafnvægis.
1x reipi til að festa á báðar hliðar.
Á báðum endum eru málmfestingar.
1x slá með punktum á annarri hliðinni.
Hin hliðin er flöt og er einnig hægt að nota til jafnvægis.
Unnið úr birkikrossvið
Lakkað með vatnsbundnu UV lakki eða Ólakkaður
Stærð:
þykkt á slá:
27mm
lengd á slá:
58cm
Mid-Century 2in1 Hjálparturninn er meira en bara hjálparturn, hann er hannaður með tvöfalda virkni svo barnið þitt geti bæði hjálpað í eldhúsinu og notað hann sem borð og stól!
Stærð sem hjálparturn:
• Hæð: 88 cm
• Breidd: 40 cm
• Fyrsta þrep (37.5 cm x 14 cm) – Hæð frá gólfi: 25.5 cm
• Pallur (37.5 cm x 28 cm) – Hæð frá gólfi: 45.5 cm
Stærð þegar breytt í borð og stól:
• Hæð: 44 cm
• Breidd: 40 cm
• Lengd: 72 cm
Af hverju að velja 2in1 Hjálparturn?
Örugg og stöðug hönnun – Hentar börnum frá 18 mánaða aldri
Vottað efni – FSC-vottaður birkikrossviður og barnvæn húðun
CE-vottað og uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla
⚠️Hjálparturninn er hannaður til notkunar upp að borði eða innréttingu og á aldrei að standa frístandandi.
Varan skal ávallt notuð undir eftirliti fullorðinna.
Notkun á annan hátt en framleiðandi mælir með, þar á meðal að barnið klifri upp „röngu megin“ eða að turninn standi frístandandi, telst ekki örugg notkun og er á ábyrgð notanda.
Skemmtileg, mjúk skynjunarbók fyrir ungbörn sem hvetur til leikja, uppgötvunar og snertingar frá fyrstu mánuðum. Hver blaðsíða býður upp á nýja upplifun með skrölti, krumpuhljóði og mismunandi efnisáferðum sem örva skynjun barnsins.
Bókin er mjúk og örugg fyrir litlar barnahendur og hjálpa barninu að æfa grip, fínhreyfingar og fyrstu skynreynslu. Með praktískri festingu er auðvelt að hengja hana á vagn, bílstól eða leikbogann, þannig að hún fylgi barninu hvert sem er.
- Mjúk skynjunarbók fyrir ungbörn
- Skrölt og krumpuefni sem örva heyrnarskyn
- Mismunandi efnisáferðir sem örva snertiskyn
- Styður grip, fínhreyfingar og skynþroska
- Hægt að festa á vagn eða bílstól
Beltagrafa úr sterkum og endingargóðum við sem hentar fullkomlega litlum byggingaraðilum! Skóflan og armar hreyfast á tveimur stöðum og snýst 360° eins og á alvöru vinnuvél. Hjól undir gervibeltum gera vélina auðvelda í akstri en samt með útliti sem minnir á ekta beltagrafu. Varan býður upp á óendanlega leikmöguleika og hjálpar börnum að þjálfa fínhreyfingar, samhæfingu og skapandi hlutverkaleiki.
Stærð: ca. 23 × 10 × 13 cm
Hæð með upphækkaðri skóflu: ca. 23 cm
Aldur: 24 mánaða+
Flokkunarboxið frá Small Foot er fullkominn þroskaleikur fyrir litla könnuði. Kassinn inniheldur 20 viðarskífum og 2 tvíhliða myndaspjöld með skemmtilegum þemum.
Þetta vandaða viðarbox með 10 hólfum og teygjulokun hjálpar börnum að:
- Æfa fínhreyfingar með því að setja skífurnar í raufar
- Þekkja liti og form
- Þróa orðaforða með því að tengja mynd og orð
- Æfa rökhugsun og einbeitingu
Einfalt að geyma í boxinu, tilvalið á ferðalögum eða sem fallegt viðbót við leikskólastarf og heimili
- Stærð: ca. 40 x 10 x 5.5 cm
- Aldur: 3 ára og eldri
- Efni: Viður
12 Fallegir montessori jafnvægissteinar úr FSC® vottuðum við, tilvalið fyrir börn til að þróa fínhreyfingar, einbeitingu og skapandi hugsun á leikrænan hátt. Inniheldur 12 mismunandi steina með óreglulegum hliðum og mjúkum brúnum sem eru hannaðir til að passa fullkomlega í litlar hendur. Steinar sem hægt er að stafla, flokka, telja og leika með á óteljandi vegu.
Ráðlagður aldur: 12mánaða +
Myndaspjöld, Gæludýrin frá Wee Gallery eru fullkomin fyrsta skynörvunin fyrir litlu augun.
Þessi hákontrast spjöld eru sérhönnuð fyrir ungabörn sem byrja að sjá svart og hvítt fyrst. Spjöldin laða að athygli, örva sjónskynjun og styrkja einbeitingu.
- Dýramynstur
- Hver hlið hefur svarthvítt tvöfalt mynstur
- Þykk, slitsterk og með mjúkum hornum, örugg fyrir litlar hendur
- Handteiknuð og prentuð með soja-bleki
Má þurrka af með rökum klút
Stærð: 5x7" (12,7 x 17,8 cm)
Fyrir 0 mánaða og eldri
FSC vottaður pappír
CE merkt
Eiturefnalaust, prófað fyrir öryggi
Fullkomin viðbót við Tummy Time Gallery eða sem stakur leikur!
Bættu leikgleði við hjálparturninn með Rennibrautinni frá Duck WoodWorks! Þessi viðbót breytir hjálparturninum í skemmtilegt og virkt leiksvæði þar sem börn geta æft jafnvægi, samhæfingu og fengið útrás
- Passar bæði 2in1 og 4in1 hjálparturninn frá Duck WoodWorks
- FSC-vottaður birkiviður með barnvænu lakki (EN 71-3)
- CE vottað
- Hámarks burður 50 kg
Stærð (cm): 51 x 104 x 38
Þyngd: 4 kg
Umsjón: Þrífa með rökum klút og þurrka með mjúkum klút
Fallegur staflturn úr við.
Með því að setja 7 fallega kubba saman þjálfast samhæfing augna og handa og skilningur á formum og stærðum.
Stærð:
14 x 9cm
Ráðlagður aldur:
12mánaða+
Margnota litapúsl sem samanstendur af 24 viðar kubbum í fallegum litum.
-þjálfar fínhreyfingar,
-æfir þolinmæði
-æfir samhæfingu augna & handa
Púsla – Flokka – Stafla – Skapa
innblásið af Montessori uppeldisaðferðinni
hvetur börn til að leika á skapandi hátt á meðan það þjálfar ímyndunaraflið og skilning þeirra á mismunandi stærðum, litum og formum.
Hvað fylgir?
1x Bakki
24x Kubbar
Ráðlagður aldur: 3ára+
Stærð:
Bakki – 28 x 2,5 cm
Kubbar – 10 x 3,5 x 2 cm
Steypubíll FSC® 100% vottuðum við
Stærð:
13cm X 7cm X 10cm
Skipulagsvasi – Fullkomin viðbót fyrir STEP'N'SIT® Hjálparturninn
Haltu litunum skipulögðum og aðgengilegum fyrir litla listamenn!
Hagnýt og falleg viðbót við STEP'N'SIT® Hjálparturninn sem hjálpar börnum að hafa allt til reiðu á meðan þau skapa. Hægt er að geyma liti, blýanta, skæri og aðra smáhluti á þægilegan hátt og gera sköpunina enn skemmtilegri og auðveldari.
Af hverju að velja skipulagsvasann?
✅ Hentar fullkomlega á STEP'N'SIT® Hjálparturninn
✅ Skipulagt & aðgengilegt – auðveldar barninu að finna liti & ritföng
✅ Hvetur til sköpunar – auðvelt að nálgast allt sem þarf
✅ Handgert úr mjúku filti – náttúrulegt & endingargott
✅ Umhverfisvænt efni – allt að 90% endurunnið PET filt
✅ 100% öruggt fyrir börn – engir smáhlutir
✅ Má þvo í þvottavél – ullarprógramm fyrir auðvelda hreinsun
✅ Sjálfbært val – 100% endurvinnanlegt efni
Hvernig nota ég skipulagsvasann?
1️⃣ Festu vasann við hlið STEP'N'SIT® Hjálparturnsins.
2️⃣ Geymdu liti, blýanta, skæri og aðra fylgihluti.
3️⃣ Skapaðu skipulagt og hvetjandi rými fyrir litla listamenn!
Stærð & upplýsingar:
📏 Breidd: 21,7 cm
📏 Hæð: 17,5 cm
🎨 Fáanlegur í tveimur litum – veldu þann sem passar best!
Siglt um óbyggðir af krafti!
Þrjú mismunandi lituð viðarhjól skreytt með mynstrum renna niður þrjá rampa í fallegu safarí útliti.
Mörgæsin sameinar white, pink og brown noise ásamt hlýju næturljósi og upptökufídus! Þetta fallega og róandi tæki er hannað fyrir börn, foreldra og alla sem vilja betri svefn og meiri slökun.
- 30 róandi hljóð: white noise, pink noise, brown noise, náttúru- og viftuhljóð
- Ljós: hlýtt næturljós (2 stillingar) + 7 litir
- Upptökufídus: taktu upp rödd eða lag fyrir barnið
- Tímastilling: 30 / 60 / 90 mínútur eða spilun alla nóttina
- Endurhlaðanlegt: 1500 mAh rafhlaða (allt að 15–32 klst spilun)
- Type-C USB hleðsla – snúra fylgir
- Vottað: CE / FCC / RoHS / UKCA
Fullkomið fyrir svefnrútínur, ferðalög, leikskóla og hvíldarstundir. Tækið getur spilað hljóð og ljós saman eða hvort í sínu lagi.
Innihald kassa:
- Mörgæsin hljóðtæki
- USB Type-C hleðslusnúra
- Leiðbeiningar
Við mælum alltaf með að hlaða tækið með 5V / 0.5–1A USB kubb. Forðist hraðhleðslu. Það getur haft áhrif á endingartíma og fellur ekki undir ábyrgð.
Leó er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Leó er er í sætum smekkbuxum sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Fallegt og náttúrulegt 50 stykkja kubbasett úr ómeðhöndluðum við sem hentar frá 12 mánaða aldri. Settið inniheldur fjölbreytta kubba í mismunandi formum, sívalninga, ferhyrninga, boga og turna, sem efla skapandi leik, ímyndunarafl og fínhreyfinga
Kubbarnir koma í þægilegum taupoka sem auðveldar geymslu og ferðalög.
Stærðir:
Kubbur (teningur): ca. 3 × 3 × 3 cm
Réttur kubbur: ca. 3 × 3 × 6 cm
