Raða eftir:
Fallegur og klassískur staflturn úr við sem hjálpar börnum að þróa fínhreyfingar, einbeitingu og skilning á stærðum á skemmtilegan hátt.
Turninn samanstendur af 7 staflanlegum hlutum í mjúkum pastel litum og með topp sem gerir leikinn enn skemmtilegri. Botninn er örlítið sveigjanlegur, sem gerir turninum kleift að vagga fram og til baka þegar barnið staflar hringjunum.
Leikfangið er úr vönduðum og endingargóðum við með mjúkum brúnum sem henta vel litlum höndum. Staflturninn er bæði fræðandi og fallegt leikfang í barnaherbergi.
- Fínhreyfingar
- Samhæfing handa og augna
- Stærðarskilningur
- Einbeiting
Frábær gjöf fyrir nýbura, skírn eða fyrsta afmæli.
Mæja er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Mæja er er í sætum kjól sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Skemmtilegt og klassískt samstæðu spil úr við sem þjálfar minni, einbeitingu og rökhugsun á leikandi hátt. Spilið inniheldur 14 myndapör með krúttlegum dýramyndum sem börn geta parað saman.
Allt settið kemur í viðarkassa með renniloki, sem gerir auðvelt að geyma spilið og taka það með sér í ferðalag.
- Klassískt memory spil fyrir börn
- 14 samstæð pör með fallegum dýramyndum
- Þjálfar minni, einbeitingu og rökhugsun
- Kubbar úr vönduðum við
- Kemur í viðarkassa með renniloki
- Hentar fyrir 1–4 spilara
Adventure Jafnvægisslá, 7 stk úr náttúrulegum við sem má raða saman á ótal vegu! Börn geta smellt bitunum saman með auðveldlega og byggt sína eigin jafnvægisbraut, frá einföldum jafnvægis æfingum yfir í heilt ævintýrakennslusvæði. Tvöfaldar hliðar bjóða upp á mismunandi áskoranir og þjálfa jafnvægi, samhæfingu og sjálfstraust á skemmtilegan hátt.
Stærðir:
Langar slár ca. 70 × 10 × 3 cm,
stuttar slár ca. 20 × 10 × 3 cm
Aldur: 3+
Öflugur slökkviliðsbíll úr hágæða við, fullkominn fyrir alla litla hetjur! Stiginn snýst 360°, er teygjanlegur og með öryggisgrindum og hreyfanlegri körfu. Gúmmíhjól tryggja hljóðlátan og mjúkan akstur, og fylgihlutir eins og slökkviliðsmaður, keilur og eldar gera leikinn enn skemmtilegri. Fullkomið leikfang til að æfa samhæfingu, hreyfifærni og sköpun í björgunarleik.
Stærð
Bíll: 42 x 17 x 20cm
Aldur: 24mán+
Skemmtilegur bíll úr sterkum við.
Með hreyfanlegri skóflulyftu, sem gerir börnum kleift að lyfta, færa og flytja litla hluti í leiknum. Gúmmíhjól tryggja mjúkan og hljóðlátan akstur, endingargóð hönnun heldur leiknum spennandi lengi. Fullkomin fyrir sköpunarleik og fínhreyfiþjálfun.
Stærð: ca. 21 × 7,5 × 10 cm
Aldur: 24 mánaða+
Stórt og fallegt 50 stk. kubbasett úr við með safari dýrum, formum og náttúrulegum litum. Fullkomið fyrir sköpun, ímyndunarafl og fínhreyfingar.
Kemur í geymsluíláti með loki.
Hentar frá 12 mánaða aldri.
Fullkomin leikmáltíð úr FSC® vottuðum við.
Diskur, hnífapör, grænmeti, kjöt, eftirréttur og drykkur.
Frábært fyrir hlutverkaleiki, fínhreyfingar og ímyndunarafl!
Innihald:
Diskur
Hnífapör: hnífur, gaffall, skeið
Kjöt, pylsa, steik, sveppur, brokkólí, egg
Appelsínusafi með appelsínusneið
Ísbolli og ísskeið
Aldur: 3+
Gleði og leikur í jólaandanum!
snjókarl, jólatré eða jólasveinn, öll búin til úr við sem hægt er að raða saman. Fullkomið sem skemmtilegt jóladót eða litlar gjafir frá jólasveininum eða í aðventudagatal eða pakkaleik.
Leikurinn eflir fínhreyfingar, einbeitingu og skilning á stærðum og lögunum og passar jafnframt sem jólaskraut!
Ráðlagður aldur: 12+ mánaða
Stærð: 5 x 5 x 13 cm
Kistan virkar bæði sem geymsla og sem vinnubekkur. Börnin fá hamar, skrúfjárn, skrúflykil, fjölbreyttar skrúfur, rær og gataplötum.
Allir hlutirnir eru úr við og í fallegum litum sem höfða jafnt til allra kynja. Hægt er að skrúfa og smíða beint á kassann eða búa til hluti eins og kappakstursbíl, flugvél og flr. Fullkomið leikfang til að efla fínhreyfingar, lausnaleit og sköpunargleði.
Hugmyndabók fylgir með
Fyrir 3 ára og eldri
Skynkubbur, Frumskógur frá Wee Gallery er mjúkur og örvandi leikfélagi fyrir minnstu börnin. Kubburinn er hannaður til að styðja við snertingu, sjón og gripþroska, án rafhlaðna eða hljóða!
- Svart-hvítar andstæður og stílhrein dýramynstur
- Mjúk áferð og brakhljóð sem örva snertingu
- Stuðlar að fínhreyfingu og skynþroska
- Myndir af skógardýrum
- Fyrir 0+ mánaða
- Úr 100% lífrænni bómull
- Fylling: Non-toxic foam
- GOTS & OEKO-TEX vottuð framleiðsla
- Framleitt á Indlandi
Aðeins yfirborðshreinsun
Falleg og hagnýt gjöf fyrir nýbura, passar bæði í leik og á ferð!
- Skemmtun fyrir alla: Klassískur leikur með einföldum reglum
- Dýramynstur: Sæt hönnun með íkorna, frosk, fugl & fleiri
- Innandyra & úti: Mjúkir hringir henta jafnvel inni sem og úti
- Auðvelt að geyma: Bómullar poki fylgir með
- CE merking: Umhverfisvænt og öruggt
Fallega hannað hringjakast frá Small Foot sem sameinar klassíska skemmtun með barnvænu þema. Leikurinn inniheldur mjúka hringi og litamerkta pinna, sem gera hann bæði öruggan fyrir yngri börn og spennandi fyrir eldri leikmenn.
- 5 viðarpinnar og 5 mjúkir hringir með sætum dýramyndum
- Auðvelt að setja upp – bæði sem kross eða T-form
- Mjúkir hringir henta jafnvel fyrir leik innandyra
- Bómullar poki fylgir – tilvalið í útilegu eða á ströndina
- CE merkt – umhverfisvænt og öruggt
Leikurinn þjálfar samhæfingu, nákvæmni og einbeitingu á skemmtilegan hátt – hentar fullkomlega fyrir leik í garðinum, í stofunni eða á ferðinni!
Upplýsingar
- Stærð leiks: ca. 45 x 45 x 12 cm
- Stærð hringja: ca. Ø 13 cm
- Efni: Viður, vefnaður og bómull
- Aldur: 3 ára+
- Innihald: 1 markrammi, 5 hringir
- Vottanir: CE merkt
- Vörumerki: Small Foot
Skynjunarborðið er hannað til að örva sköpunargleði, sjálfstæði og skynjun barna í gegnum fjölbreyttan og skemmtilegan leik. Borðið inniheldur tvo stóra bakka sem má fylla með sandi, vatni, litum eða öðru skemmtilegu efni, fullkomið fyrir frjálsan leik, listsköpun eða smáa ævintýraheim.
Þegar leiktímanum lýkur er einfalt að loka borðinu og breyta því í leik- eða vinnuborð fyrir barnið. Borðið er einnig samanbrjótanlegt og tekur lítið pláss þegar það er ekki í notkun, frábært fyrir lítil heimili.
Efni og gæði:
• Framleitt úr FSC vottuðum birkikross og MDF
• Lakkað og málað með barnvænum efnum sem uppfylla öryggisstaðal EN 71-3
Stærð:
• Hæð: 52 cm
• Breidd: 51 cm
• Lengd: 80 cm
• Hæð samanbrotið: 11 cm
Umhirða:
Þurrka með rökum klút og mildu hreinsiefni. Þurrka eftir með þurrum mjúkum klút.
Falleg risaeðla úr FSC® 100% vottuðum við sem hægt er að ýta með sér og með innbyggðu perluvölundarhúsi
Ástúðlega hönnuð vara í skærlitaðri frumskógarhönnun
Inniheldur perluvölundarhús með ýmsum viðarperlum sem renna eftir brautinni
-Styður við fínhreyfingar barna
Fallegt viðarleikfang sem færir hreyfingu inn í barnaherbergið!
Stærð:
15 x 6,5 x 13cm
Ráðlagður aldur:
12 mánaða +
Fallegur fíll úr FSC® 100% vottuðum við sem ýtir með sér með innbyggðu perluvölundarhúsi
Ástúðlega hönnuð vara í skærlitaðri frumskógarhönnun
Inniheldur perluvölundarhús með ýmsum viðarperlum sem renna eftir brautinni
-Styður við fínhreyfingar barna
Fallegt viðarleikfang sem færir hreyfingu inn í barnaherbergið!
Stærð:
14 x 8 x 12cm
Ráðlagður aldur:
12 mánaða +
Fallegt viðar verkfærasett
-Endalausir möguleikar fyrir mikilvæga aðstoðarfólkið okkar!
Að fá að taka þátt í daglegum verkefnum eflir sjálfstraust barnanna.
Með þessu sniðuga verkfærasetti geta allir hjálpast að.
-Sveigjanlegar teygjur í verkfærakassanum halda verkfærunum á sínum stað
Hvað fylgir?
1x Verkfærakassi
1x Hamar
1x Skrúfjárn
1x Töng
1x Hallarmál
11x Skrúfur
11x Rær
3x Bitar
12x Ræmur
Stærð:
Verkfærakassi – 33 x 27 x 6,5cm
Ráðlagður aldur:
3ára +
Settið inniheldur mjúkan bómullarklút, hringlu og griphring sem örvar skynfærin með mismunandi áferð, perlulaga formum og skrjáfhljóði í vængjunum. Leikföngin eru hönnuð fyrir litlar hendur.
Þetta er falleg gjöf fyrir nýbura og sniðugt sett fyrir fyrstu leikföng barnsins.
Aldur: 0+ ára
KiddiKutter hnífaparasettið fyrir börn inniheldur hníf, gaffal og skeið, og er hvert áhald í réttri stærð fyrir litlar hendur. Hnífurinn er með hinu einkennandi Kiddikutter blaði sem sker í gegnum ávexti, grænmeti og mjúkan mat með því að saxa eða saga, en er jafnframt öruggt fyrir fingur.
Sílikonhandföngin veita öruggt og þægilegt grip sem hjálpar börnum að þróa með sér þá samhæfingu og fínhreyfingar sem þarf til að geta borðað sjálft. Fremri parturinn er úr stáli.
Hnífur: 17.5cm
Gaffall: 16cm
Skeið: 15cm
Mælt með fyrir 3 ára og eldri.
Má fara í efstu hillu í uppþvottavél.
Settið inniheldur hjólbörur, þrjú stærri garðverkfæri, tvö minni handverkfæri og vinnuhanska í barnastærð. Hjólbörurnar eru stöðugar, auðvelt er að ýta þeim áfram og þær henta vel til að flytja sand, mold, lauf, steina eða önnur „garðfjársjóð“.
Verkfærin eru úr sterkum málmi, í barnvænni stærð og skreytt með fallegum dýramynstrum. Fullkomið í garðinn, sandkassann, fjöruna eða fyrir skapandi útileik.
Efni: Málmur, viður, textíll og gúmmí
Stærð hjólbara: 78 × 36 × 44 cm
Stærð hrífu: 74 × 18 cm
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Pikler þríhyrningur með veggfestingu og rennibraut, fjölnota leikstöð sem örvar hreyfiþroska, styrk og sköpunargleði barna á öruggan og skemmtilegan hátt.
Burðarþol:
50kg
Stærð sem pikler:
Hæð: 68 cm
Lengd: 88 cm
Breidd: 78,5 cm
Sem klifurveggur:
Hæð: 150 cm
Breidd: 78,5 cm
Festing (armur til veggjar):
Breidd: 66,5 cm
Fjarlægð frá vegg: 42 cm
Uppsetning:
Festist auðveldlega á vegg með sérhönnuðum veggfestingum (fylgja með). Þríhyrningurinn getur verið frístandandi eða festur upp á vegg, allt eftir því hvernig þú vilt nýta leikrýmið.
Umhirða:
Þurrkaðu með rökum klút og léttu hreinsiefni. Þurrkaðu eftir með mjúkum og hreinum klút.
Efni: FSC vottaður Birkikrossviður/MDF
Vottun: Varan er með CE-vottun og uppfyllir kröfur evrópska öryggisstaðalsins EN 71-3
Rólan er úr vönduðum beyki við og sterku efni, með mjúkum tvílita púða sem hægt er að snúa við og taka úr eftir þörfum. Þannig getur rólan vaxið með barninu og aðlagast mismunandi þroskastigum.
Öryggi og þægindi eru í fyrirrúmi:
- Fjórar stöðugar velti-varnir
- Stillanlegt öryggisbelti
- Stillanleg reipi til að aðlaga hæð
- Burðarþol, 60kg
Rólan styður einnig við jafnvægisskyn og hreyfiþroska barnsins á leikandi hátt.
Falleg og tímalaus róla sem passar inn á öll heimili.
Fallegt og einfalt Montessori flokkunarleikfang úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að læra liti og æfa fínhreyfingar á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur 6 litríka bikara og 6 viðarfigúrur sem passa við lit bikaranna. Börn geta flokkað figúrurnar eftir lit, sett þær í réttan bikar eða notað þær í frjálsum leik.
Með því að para saman figúrur og bikara þjálfa börn samhæfingu handa og augna, litaskyn og fínhreyfingar á náttúrulegan og skemmtilegan hátt.
- 6 litríkar viðarbikarar
- 6 viðarfigúrur sem passa við litina
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna
- Kennir litagreiningu og flokkun
- Styður rökhugsun og skipulag
- FSC® 100% vottaður viður
Skemmtilegur og fjölnota skynjunarbangsi fyrir ungbörn sem hvetur til leikja, uppgötvunar og skynjunar frá fyrstu mánuðum. Bangsinn er úr mjúku musselin efni með mismunandi áferðum sem örva snertiskyn barnsins.
Hann er með innbyggt skrölt, spegil og naghring, sem hjálpar barninu að kanna hljóð, snertingu og hreyfingu á leikandi hátt. Með praktískri festingu er auðvelt að hengja hann á vagn, bílstól eða leikgrind, þannig að hann fylgi barninu hvert sem er.
- Innbyggt skrölt sem örvar heyrnarskyn
- Naghringur sem getur róað góma
- Spegill sem vekur forvitni barnsins
- Mismunandi efnisáferðir sem örva snertiskyn
- Hægt að hengja á vagn, bílstól eða leikboga
Stöðugur slökkviliðsbíll úr tré sem hentar fullkomlega fyrir litla slökkviliðsmenn! Bíllinn er með 360° snúanlega og útdraganlega stiga með körfu, sem gerir börnum kleift að bjarga fígúrum og leika fjölbreyttar björgunarsenur. Gúmmíhjól tryggja hljóðlátan akstur og endingargóða notkun. Eflir ímyndunarafl, hlutverkaleik og samhæfingu handa og augna.
Stærð: ca. 28 x 8 x 12 cm
Aldur: 24 mánaða +
Sterkur og skemmtilegur kranabíll úr við sem hentar litlum byggingameisturum!
Kraninn snýst 360°, armurinn er stillanlegur og hægt er að hífa upp bretti með handkróknum. Gúmmíhjól tryggja hljóðlátan akstur og stöðugleika. Fullkomið leikfang til að æfa fínhreyfingar, samhæfingu og sköpunarhæfni.
Fyrir alla litla bíla og vinnuvélaaðdáendur.
Stærð
Kranabíll: 30 x 8 x 14cm
Vörubretti: 11 x 8 x 2cm
Aldur: 24mán+
Lyftari úr sterkum við!
Lyftarinn fer auðveldlega upp og niður með snúningshjóli og vörubrettið fylgir með. Gúmmíhjól tryggja mjúkan og hljóðlátan akstur, endingargóð hönnun býður upp á endalausan ímyndunarleik og þróun fínhreyfinga.
Stærð: ca. 24 × 7 × 17 cm
Vörubretti: ca. 11 × 8 × 2 cm
Aldur: 24 mánaða+
Klassískt Montessori kúlubox úr FSC® vottuðum við sem kennir barninu „object permanence“ á leikandi hátt. Barnið sleppir kúlunni ofan í boxið og hún rúllar strax út aftur! Fullkomið fyrir að þjálfa gríp, hreyfifærni og einbeitingu.
Hentar 12 mánaða+ og örvar sjálfstæða leikgleði.
Stærð: ca. 15 × 15 × 14 cm
Snúa, horfa og uppgötva!
Falleg og barnvæn kviksjá úr FSC®-vottuðum pappír sem sýnir litríkar og síbreytilegar mynstramyndir við hverja snúning. Fullkomin fyrir litla könnuði sem elska lit, form og töfrandi sjónáhrif.
L - 19cm
B - 4,5cm
Mjúk bók með skrjáf hljóðum og spegli frá Wee Gallery er fullkomið skynörvunarleikfang fyrir minnstu börnin. Hvetur barnið til að skoða, hlusta og grípa.
Bókin festist auðveldlega við barnavagn, bílstól og leikgrind.
- Svart-hvítar andstæður og stílhrein dýramynstur
- Mjúk áferð og brakhljóð sem örva snertingu og heyrn
- Fyrir 0+ mánaða
- Úr 100% lífrænni bómull
- GOTS & OEKO-TEX vottuð framleiðsla
- Framleitt á Indlandi
Aðeins yfirborðshreinsun
Falleg og hagnýt gjöf fyrir nýbura, passar bæði í leik og á ferð!
Sveitabær með fallegum dýravinum úr FSC® vottuðum við.
Litríkt og fallegt leikfang, fullkomið fyrir yngri börn til að æfa fínhreyfingar og samhæfingu augna og handa, örvar forvitni og leikgleði..
Þrjú dýr snúast í hjólinu.
Ráðlagður aldur: 12mánaða+
Stafl- og tannhjólaleikfang „Vinir úr frumskóginum“ úr FSC® vottuðum við.
Hjálpar börnum að æfa fínhreyfingar á skemmtilegan hátt. Þrír dýra vinir, fílinn, tígrisdýrið og pandan. Þegar eitt tannhjól snýst, snúast hin líka – töfrandi áhrif sem börnin elska!
Þróar fínhreyfingar, rökhugsun, samhæfingu handa og augna ásamt skilning á formum.
Ráðlagður aldur: 12mánaða+
Myndaspjöld, Skógardýrin frá Wee Gallery eru fullkomin fyrsta skynörvunin fyrir litlu augun.
Þessi hákontrast spjöld eru sérhönnuð fyrir ungabörn sem byrja að sjá svart og hvítt fyrst. Spjöldin laða að athygli, örva sjónskynjun og styrkja einbeitingu.
- Dýramynstur
- Hver hlið hefur svarthvítt tvöfalt mynstur
- Þykk, slitsterk og með mjúkum hornum, örugg fyrir litlar hendur
- Handteiknuð og prentuð með soja-bleki
Má þurrka af með rökum klút
Stærð: 5x7" (12,7 x 17,8 cm)
Fyrir 0 mánaða og eldri
FSC vottaður pappír
CE merkt
Eiturefnalaust, prófað fyrir öryggi
Fullkomin viðbót við Tummy Time Gallery eða sem stakur leikur!
