Örugg hönnun

Uppfyllir evrópska öryggisstöðulinn EN 71-3 og er CE vottað

Sjálfbær framleiðsla

Með áherslu á náttúruleg efni og lágmarks sóun.

Sterk gildi

Leikföng sem örva ímyndunarafl, fínhreyfingar, rökhugsun og félagsfærni.

Þroskasett, 0-3 mánaða

9,990 kr

Þroskamiðað leikfangasett sem er sérstaklega samsett fyrir fyrstu þrjá mánuði barnsins. Settið inniheldur 7 leikföng sem styðja við sjón, heyrn, snertiskyn og fyrstu hreyfiþroskaskrefin, ásamt leiðbeiningabæklingi með leikhugmyndum og fróðleik um þroska barnsins.

Sterkar svart-hvítar andstæður, mismunandi áferðir, mild hljóð og form sem auðvelt er að grípa í gera settið sérstaklega hentugt fyrir fyrstu vikur og mánuði barnsins.

Inniheldur:

  • Viðarhringur
    Með mjúku dýri og
    mismunandi áferðum, örvar snertiskyn og fyrstu griptilraunir.
  • Krumpuklútur
    Mjúkur klútur með krumpuhljóði sem örvar snertingu, heyrn og grip.
  • 4 hákontrastspjöld
    Svarthvít mynstur, styðja við sjónþroska og hæfni barnsins til að fókusera.
  • Sílíkon gripbolti
    Léttur og sveigjanlegur og auðvelt að grípa í fyrir litlar. Hentar einnig sem nagleikfang.
  • Hringla
    Hægt að setja á hand/fótlegg barnsins, hjálpar barninu að uppgötva eigin hreyfingar og tengja þær við hljóð.
  • Viðarhringla
    Úr FSC® 100% vottuðum við, auðvelt að grípa með annarri eða báðum höndum og gefur frá sér milt hljóð.
  • Mjúkur skynjunarpíramídi
    Léttur, hákontrast og auðvelt að grípa, kreista og halda á.

Þroskasett 0–3 mánaða er því líka einstaklega falleg og nytsamleg sængurgjöf, skírnargjöf eða gjöf fyrir nýbakaða foreldra.

Aldur: 0–3 mánaða
Efni: FSC® 100% vottaður viður, textíll, pappír/pappi, gerviefni og sílíkon
Vörumerki: small foot

Við veitum 14 daga  skila/skiptifrest á vörum gegn framvísun greiðslukvittunar eða gjafamiða. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð þá má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru.

Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni í aðra vöru er gefin út rafræn inneignarnóta eftir að White Noise hefur staðfest móttöku á vöru.

Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á whitenoise@wnoise.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum í gegnum vöruskil Dropp HÉR gegn vægu gjaldi.
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

9,990 kr

Barn að leika með viðarleiköng frá SmallFoot

ÞROSKANDI & SKAPANDI

SMALL FOOT

Vönduð viðarleikföng sem sameina sköpun, þroska og leikgleði.
Hönnuð af ást í Þýskalandi með öryggi og sjálfbærni í fyrirrúmi.