2in1 Cube sett
31.990 kr
2in1 Cube settið er fjölhæf og snjöll Montessori lausn sem vex með barninu þínu. Með einfaldri hreyfingu er hægt að snúa kubbnum og breyta honum í stól, borð eða tvo mismunandi háa stóla, fullkomið fyrir leik, lærdóm og daglegt líf.
Settið er hannað með sjálfstæði barnsins í huga og styður við Montessori nálgun þar sem barnið fær að kanna, læra og taka þátt á eigin forsendum. Hvort sem það er að teikna, lesa, borða eða leika sér, þá aðlagast Cube settið þörfum barnsins á hverju stigi.
Slétt yfirborð og mjúkar brúnir tryggja öryggi, á meðan náttúruleg viðaráferð gefur hlýlegt og fallegt útlit sem passar inn á hvert heimili.
Stærðir:
- Breidd: 38 cm
- Hæð: 38 cm
- Dýpt: 38 cm
Nánari upplýsingar:
Efni: Birki krossviður / MDF
FSC vottað efni
Barnvæn yfirborðsmeðferð (uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla)
Ósamsett, einfalt og fljótlegt að setja saman (leiðbeiningar fylgja)
Duck WoodWorks sendingin er væntanleg um miðjan Desember!
Við veitum 14 daga skila/skiptifrest á vörum gegn framvísun greiðslukvittunar eða gjafamiða. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð þá má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru.
Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni í aðra vöru er gefin út rafræn inneignarnóta eftir að White Noise hefur staðfest móttöku á vöru.
Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á whitenoise@wnoise.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum í gegnum vöruskil Dropp HÉR gegn vægu gjaldi.
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
ALGENGAR SPURNINGAR
Með forpöntun pantar þú vöruna fyrirfram og tryggir þér eintak.
Við sendum hana til þín strax þegar næsta sending kemur til landsins (væntanleg 8.júní).
Duck Wood Works vörurnar eru handgerðar og koma í takmörkuðu magni.
Já! Allar vörur eru prófaðar samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum (EN 71-3) og hannaðar með börn í huga – engar beittar brúnir og endingargott yfirborð sem þolir daglega notkun.
Vörurnar eru úr hágæða birkikrossvið og MDF með FSC-vottun. Öll málning og lökk eru barnvæn og uppfylla evrópskar öryggiskröfur (EN 71-3).
Best er að þrífa með mjúkri tusku sem hefur verið vætt með mildu hreinsiefni. Þurrkið svo með hreinni, mjúkum klút.
Klappturninn kemur samsettur.
Vörurnar eru hannaðar til að vera auðveldar í samsetningu. Flestar taka aðeins nokkrar mínútur og fylgja leiðbeiningar með.
Duck WoodWorks
Hágæða handverk fyrir börnin þín
Duck Woodworks
Duck Woodworks hefur í 10 ár skapað fallegar og vandaðar viðarvörur fyrir börn. Allar vörur eru hannaðar með öryggi, sjálfbærni og þroska barna í huga – svo fjölskyldan þín geti notið þeirra í mörg ár.
