Sumarið er fullt af litlum augnablikum sem skipta máli.
NJÓTUM SAMAN Í SUMAR☀️
Hér finnur þú sniðugar og fallegar vörur sem henta vel fyrir sólríka daga, útileiki, ferðalög og sumarævintýri með börnunum.
Raða eftir:
Sett af íspinnum fyrir unga íssala!
-Fyrirferðalítið gert úr FSC® 100% vottuðum við
-Skemmtilegt í hlutverkaleik!
6x fallegir íspinnar
1x bakki undir íspinna
Stærð:
Ísbakki – 11x11x3,5cm
Íspinnar – ca. 11x2,5cm
Lásaspjald er fjölhæft þroskaspjald úr við sem býður börnum upp á endalausa möguleika til að læra og leika sér! Með fallegu Safari-þema og litríku mynstri eru spennandi dýravinir á bak við glugga og hurðir með mismunandi læsingum, sem börn þurfa að læra að opna
- 3 mismunandi gerðir af læsingum: snúningslás, hurðarkrækja og smellulás
- Þjálfar fínhreyfingar, samhæfingu og daglega færni
- Þjálfar sjónræna athygli og lausnamiðaða hugsun
- Safari dýramyndir sem birtast þegar hurðir eru opnaðar
- Falleg nútímaleg litapalletta í bland við náttúrulegan við
- Hágæða efni: náttúrulegur viður & málmlásar
Stærð: ca. 22 x 22 x 1 cm
Aldur: 3 ára og eldri
CE vottun
Þetta Montessori-innblásna læsingaspjald er ekki bara skemmtilegt, það styður við sjálfstæða færni barnsins og eykur öryggi við að takast á við verkefni daglegs lífs. Tilvalið fyrir leikskóla, heimilið eða sem gjöf!
Tvíhliða jafnvægiskubbar - Einföld hönnun úr náttúrulegum við með mismunandi staðsettum hálfkúlum undir hverjum kubb.
Þjálfar jafnvægi, samhæfingu og eykur á leikandi hátt traust á eigin getu hjá ungum ævintýrakönnuðum!
Non Slip tape fylgir.
Hægt er að nýta báðar hliðar á jafnvægiskubbunum, hálfkúlurnar eru staðsettar á mismunandi hátt undir hverjum kubb og býður þannig upp á mismunandi áskoranir fyrir börn. Þegar allir kubbarnir eru sameinaðir mynda þeir skapandi jafnvægisleið með sérstillanlegum erfiðleikastigum fyrir börn á fjölbreyttum aldri! - sem þýðir að jafnvægiskubbarnir er leikfang sem "vex með börnunum"
8x Jafnvægiskubbar
Non Slip tape
Kubbarnir eru frá 4 x 9,5/20 cm
Hámarks burðarþol - 50kg
Ráðlagður aldur - 3+ ára
Bönd sem hægt er að festa við sólgleraugun svo að þau haldist betur á þeim yngstu og þeim sem vilja alls ekki týna sólgleraugunum sínum.
Böndin passa á allar tegundir sólgleraugna frá Leosun og geta hangið þægilega um háls barnanna þegar sólgleraugun eru ekki í notkun.
Böndin eru gerð úr einstaklega mjúku efni og er hannað til þess að þola notkun og bras frá litlum börnum.
