Örugg hönnun

Uppfyllir evrópska öryggisstöðulinn EN 71-3 og er CE vottað

Sjálfbær framleiðsla

Með áherslu á náttúruleg efni og lágmarks sóun.

Sterk gildi

Leikföng sem örva ímyndunarafl, fínhreyfingar, rökhugsun og félagsfærni.

Skapandi perluþræðir

3.990 kr

fallegt og litríkt föndursett úr við sem hvetur börn til að skapa sín eigin armbönd, hálsmen og perluskraut.

Settið inniheldur um 81 viðarperlu í mismunandi litum og formum, ásamt tveimur þræðingarsnúrum í ólíkum litum. Perlurnar koma í praktískum viðarkassa með rennihlera, sem auðveldar geymslu og gerir settið sniðugt að taka með í ferðalag, heimsókn eða frí.

Þræðing perlanna þjálfar þolinmæði, einbeitingu, fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna. Fullkomið fyrir börn sem elska skapandi leik, föndur og að búa til eitthvað sjálf.

Eiginleikar:

  • Litríkt perluþræðisett úr FSC® 100% vottuðum við
  • Inniheldur ca. 81 viðarperlu og 2 þræðingarsnúrur
  • Perlur í mörgum formum, t.d. stjörnur, hjörtu, blóm, fiskar og hringir
  • Hentar til að búa til armbönd, hálsmen og skapandi föndur
  • Praktískur viðarkassi með rennihleri fylgir með
  • Þjálfar fínhreyfingar, þolinmæði og samhæfingu
  • Sniðugt heima, í ferðalagið eða sem gjöf

Aldur: 3 ára+
Stærð kassa: ca. 13 × 10 × 4 cm
Innihald: ca. 81 viðarperla, 2 þræðingarsnúrur og 1 kassi
Efni: Viður og textíll
Vottun: FSC® 100%
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára vegna smáhluta.

Við veitum 14 daga  skila/skiptifrest á vörum gegn framvísun greiðslukvittunar eða gjafamiða. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð þá má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru.

Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni í aðra vöru er gefin út rafræn inneignarnóta eftir að White Noise hefur staðfest móttöku á vöru.

Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á whitenoise@wnoise.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum í gegnum vöruskil Dropp HÉR gegn vægu gjaldi.
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

3.990 kr

Barn að leika með viðarleiköng frá SmallFoot

ÞROSKANDI & SKAPANDI

SMALL FOOT

Vönduð viðarleikföng sem sameina sköpun, þroska og leikgleði.
Hönnuð af ást í Þýskalandi með öryggi og sjálfbærni í fyrirrúmi.