Raða eftir:
Er lítill hjálparkokkur á heimilinu? Þá mælum við með þessu dásamlega setti frá Kiddikutter. Í settinu koma fjögur áhöld úr beyki ásamt standi.
Með settinu geta litlu hjálparkokkarnir búið til kartöflumús, hrært deig, bakað vöfflur eða hvað sem er!
Í settinu er sleikja, kartöflustappari, þeytari og fjölnota spaði. Allt sem hentar einstaklega vel fyrir litlar hendur sem eru að taka sín fyrstu skref í matargerð.
Settið er gert úr endingargóðum og vönduðum efnum.
Eldhúsáhald sem er sérstaklega hannað fyrir börn. Rifjárnið er úr matvælavottuðu ABS plasti og með rúnaða rifplötu sem getur það öruggt fyrir börn.
Það er sílikon á botninum svo rifjárnið er með gott grip, handfangið er breytt og gott fyrir börn að halda í það og veitir börnunum góða stjórn.
Rifið er með einfaldri upp-og-niður hreyfingu sem gerir ungum aðstoðarmönnum auðvelt fyrir að ná tökum á því. Það hentar einnig fullorðnum sem hafa gagn af öruggara rifjárni með þægilegra gripi. Alltaf er mælt með eftirliti fullorðinna þegar börn nota hvers kyns eldhúsáhöld.
Með járninu fylgir hanski.
Má fara í efstu hillu í uppþvottavél.
