Raða eftir:
Settið inniheldur hjólbörur, þrjú stærri garðverkfæri, tvö minni handverkfæri og vinnuhanska í barnastærð. Hjólbörurnar eru stöðugar, auðvelt er að ýta þeim áfram og þær henta vel til að flytja sand, mold, lauf, steina eða önnur „garðfjársjóð“.
Verkfærin eru úr sterkum málmi, í barnvænni stærð og skreytt með fallegum dýramynstrum. Fullkomið í garðinn, sandkassann, fjöruna eða fyrir skapandi útileik.
Efni: Málmur, viður, textíll og gúmmí
Stærð hjólbara: 78 × 36 × 44 cm
Stærð hrífu: 74 × 18 cm
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Settið inniheldur barnvæna málmfötu með glaðlegum dýramyndum ásamt þremur verkfærum: skóflu, hrífu og aususkóflu með sterkum málmhausum og viðarhandföngum sem auðvelt er fyrir litlar hendur að grípa um.
Settið hentar vel í garðinn, sandkassann, fjöruna eða við skapandi drulluleik. Fatan nýtist til að safna sandi, mold, vatni eða litlum náttúruperlum og verkfærin hvetja börn til að grafa, móta, planta og kanna umhverfið sitt.
Aldur: 3 ára+
Efni: Málmur og viður
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Leikurinn er barnvænn og skemmtilega hannaður með fallegum dýramyndum. Einfaldar leikreglur gera börnum og fullorðnum auðvelt að taka þátt saman, hvort sem spilað er tveir saman, í liðum eða í stærri hóp.
Settið inniheldur 8 kúlur og 2 litlar markkúlur. Kúlurnar koma í praktískum geymslupoka sem auðveldar að taka leikinn með í útilegu, heimsókn, fjöruferð eða garðpartý.
Aldur: 3 ára+
Efni: Viður og textíll
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Settið inniheldur garðtösku í barnvænni stærð, 6 mismunandi garðverkfæri og 2in1 vökvunarbrúsa sem virkar bæði sem vatnskanna og úðabrúsi. Verkfærin eru með sterkum málmhausum í fallegum litum og náttúrulegum viðarhandföngum sem auðvelt er fyrir litlar hendur að grípa um.
Taskan er með rúmgóðu aðalhólfi og mörgum ytri vösum með teygjuböndum svo börn geti geymt og borið verkfærin sjálf. Fullkomið fyrir garðinn, sandkassann, fjöruna eða drulluleik.
Aldur: 3 ára+
Efni: Málmur, viður, textíll og plast
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Settið inniheldur fjórar mismunandi skóflur.
Skófluhausarnir eru úr sterkum málmi og handföngin úr náttúrulegum, ómeðhöndluðum við sem er auðvelt fyrir litlar hendur að grípa um.
Mismunandi lögun skóflanna hvetur til skapandi leiks og hjálpar börnum að kynnast formum, áferð og mismunandi notkun verkfæra. Fullkomið í sandkassann, fjöruna, garðinn eða við leir og drulluleik.
Aldur: 3 ára+
Efni: Málmur og viður
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Inniheldur allt sem þarf fyrir notalegt kaffi eða teboð fyrir tvo. Bollar, diskar, skeiðar, mjólkurkannu, sykurskál og ýmsan ''mat''.
Rjóminn og bláberin eru með seglum og hægt er að festa þau á muffins eða nota þau í drykkina. Lokin á mjólkurkönnunni og sykurskálinni eru einnig laus, sem gerir leikinn enn raunverulegri og skemmtilegri.
Aldur: 3 ára+
Efni: Viður
Varúð: Inniheldur smáhluti. Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Settið inniheldur barnasvuntu með vasa og lykkjum fyrir verkfærin, fjögur lítil garðverkfæri og vinnuhanska í barnastærð. Verkfærin eru í hentugri stærð fyrir litlar hendur og eru með sterkum viðarhandföngum sem auðvelt er fyrir börn að halda á.
Svuntan ver fötin fyrir óhreinindum og hentar ekki aðeins í garðinn, heldur líka sem eldhússvunta eða föndursvunta. Garðverkfærin nýtast einnig vel í sandkassa eða á ströndinni.
Aldur: 3 ára+
Efni: viður, málmur og textíll
Varúð: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Settið inniheldur sex sterk spjöld með handteiknuðum skógardýrum og sex lituð böndum sem barnið þræðir í gegnum spjöldin. Leikurinn æfir fínhreyfingar, samhæfingu handa og augna, einbeitingu, litagreiningu og þolinmæði á skemmtilegan og skapandi hátt.
Útsaumssettið er tilvalið sem róleg afþreying heima, á ferðalagi, á veitingastað eða þegar barnið þarf skemmtilegt verkefni án óreiðu. Spjöldin eru úr þykkum og endingargóðum FSC-vottuðum pappír og prentuð með umhverfisvænu bleki.
Upplýsingar:
- Hentar börnum frá 3 ára aldri
- Inniheldur 6 útsaumsspjöld og 6 lituð bönd
- Með myndum af bangsa, kanínu, ref, ketti, uglu og pöndu
- Úr FSC-vottuðum pappír
- Prentað með umhverfisvænu bleki
Athugið: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára vegna lengdar á böndum.
Settið inniheldur sex sterk spjöld með handteiknuðum skógardýrum og sex lituð böndum sem barnið þræðir í gegnum spjöldin. Leikurinn æfir fínhreyfingar, samhæfingu handa og augna, einbeitingu, litagreiningu og þolinmæði á skemmtilegan og skapandi hátt.
Útsaumssettið er tilvalið sem róleg afþreying heima, á ferðalagi, á veitingastað eða þegar barnið þarf skemmtilegt verkefni án óreiðu. Spjöldin eru úr þykkum og endingargóðum FSC-vottuðum pappír og prentuð með umhverfisvænu bleki.
Upplýsingar:
- Hentar börnum frá 3 ára aldri
- Inniheldur 6 útsaumsspjöld og 6 lituð bönd
- Með myndum af birni, íkorna, uglu, ref, broddgelti og laufblaði
- Úr FSC-vottuðum pappír
- Prentað með umhverfisvænu bleki
Athugið: Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára vegna lengdar á böndum.
Veggfesting úr við fyrir Klappturn sem gerir þér kleift að hengja turninn upp á vegg þegar hann er ekki í notkun.
Frábær lausn til að spara pláss og halda heimilinu snyrtilegu.
- Gerir þér kleift að hengja Klappturn upp á vegg
- Hjálpar til við að spara pláss
- Hentar vel þegar turninn er ekki í notkun
- Falleg og hagnýt viðbót við Klappturn
- Passar vel með Klappturn frá Duck WoodWorks
Athugið:
Veggfestingin er boruð á vegg. Mikilvægt er að festa hana rétt og nota viðeigandi festingar.
Hvað er veggfestingin notuð í?
Hún er notuð til að hengja Klappturn upp á vegg þegar hann er ekki í notkun.
Passar hún á alla hjálparturna?
Hún er ætluð fyrir Klappturninn frá Duck WoodWorks.
Hvernig er veggfestingin á litinn?
Hún er viðar lituð og passar því vel með öllum litum.
Pikler þríhyrningur með veggfestingu og rennibraut, fjölnota leikstöð sem örvar hreyfiþroska, styrk og sköpunargleði barna á öruggan og skemmtilegan hátt.
Burðarþol:
50kg
Stærð sem pikler:
Hæð: 68 cm
Lengd: 88 cm
Breidd: 78,5 cm
Sem klifurveggur:
Hæð: 150 cm
Breidd: 78,5 cm
Festing (armur til veggjar):
Breidd: 66,5 cm
Fjarlægð frá vegg: 42 cm
Uppsetning:
Festist auðveldlega á vegg með sérhönnuðum veggfestingum (fylgja með). Þríhyrningurinn getur verið frístandandi eða festur upp á vegg, allt eftir því hvernig þú vilt nýta leikrýmið.
Umhirða:
Þurrkaðu með rökum klút og léttu hreinsiefni. Þurrkaðu eftir með mjúkum og hreinum klút.
Efni: FSC vottaður Birkikrossviður/MDF
Vottun: Varan er með CE-vottun og uppfyllir kröfur evrópska öryggisstaðalsins EN 71-3
Montessori fataskápurinn frá Duck Woodworks er falleg og hagnýt lausn fyrir barnaherbergið. Hann hvetur börn til að velja föt sjálf, halda skipulagi og þjálfa sjálfstæði með leikandi hætti.
Skápurinn er með opnu fatahengi, þremur djúpum skúffum með útskornum formum á hliðunum. Hannaður með öryggi, endingu og fallega hönnun í huga.
Efni og vottanir:
• Framleitt úr FSC vottuðum birkikrossvið og MDF
• Barnvænt lakk og málning, uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðal
Ytri mál fataskápsins:
• Breidd: 77 cm
• Hæð: 114 cm
• Dýpt: 29,5 cm
Skúffur (hver um sig):
• Breidd: 30 cm
• Hæð: 18 cm
• Dýpt: 27 cm
Montessori fataskápurinn frá Duck Woodworks er falleg og hagnýt lausn fyrir barnaherbergið. Hann hvetur börn til að velja föt sjálf, halda skipulagi og þjálfa sjálfstæði með leikandi hætti.
Skápurinn er með opnu fatahengi, þremur opnum hillum. Hannaður með öryggi, endingu og fallega hönnun í huga.
Efni og vottanir:
• Framleitt úr FSC vottuðum birkikrossvið og MDF
• Barnvænt lakk og málning, uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðal
Ytri mál fataskápsins:
• Breidd: 77 cm
• Hæð: 114 cm
• Dýpt: 29,5 cm
Skúffur (hver um sig):
• Breidd: 30 cm
• Hæð: 18 cm
• Dýpt: 27 cm
2in1 Cube settið er fjölhæf og snjöll Montessori lausn sem vex með barninu þínu. Með einfaldri hreyfingu er hægt að snúa kubbnum og breyta honum í stól, borð eða tvo mismunandi háa stóla, fullkomið fyrir leik, lærdóm og daglegt líf.
Settið er hannað með sjálfstæði barnsins í huga og styður við Montessori nálgun þar sem barnið fær að kanna, læra og taka þátt á eigin forsendum. Hvort sem það er að teikna, lesa, borða eða leika sér, þá aðlagast Cube settið þörfum barnsins á hverju stigi.
Slétt yfirborð og mjúkar brúnir tryggja öryggi, á meðan náttúruleg viðaráferð gefur hlýlegt og fallegt útlit sem passar inn á hvert heimili.
Stærðir:
- Breidd: 38 cm
- Hæð: 38 cm
- Dýpt: 38 cm
Nánari upplýsingar:
Efni: Birki krossviður / MDF
FSC vottað efni
Barnvæn yfirborðsmeðferð (uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla)
Ósamsett, einfalt og fljótlegt að setja saman (leiðbeiningar fylgja)
Mid-Century 2in1 Hjálparturninn er meira en bara hjálparturn, hann er hannaður með tvöfalda virkni svo barnið þitt geti bæði hjálpað í eldhúsinu og notað hann sem borð og stól!
Stærð sem hjálparturn:
• Hæð: 88 cm
• Breidd: 40 cm
• Fyrsta þrep (37.5 cm x 14 cm) – Hæð frá gólfi: 25.5 cm
• Pallur (37.5 cm x 28 cm) – Hæð frá gólfi: 45.5 cm
Stærð þegar breytt í borð og stól:
• Hæð: 44 cm
• Breidd: 40 cm
• Lengd: 72 cm
Af hverju að velja 2in1 Hjálparturn?
Örugg og stöðug hönnun – Hentar börnum frá 18 mánaða aldri
Vottað efni – FSC-vottaður birkikrossviður og barnvæn húðun
CE-vottað og uppfyllir EN 71-3 öryggisstaðla
⚠️Hjálparturninn er hannaður til notkunar upp að borði eða innréttingu og á aldrei að standa frístandandi.
Varan skal ávallt notuð undir eftirliti fullorðinna.
Notkun á annan hátt en framleiðandi mælir með, þar á meðal að barnið klifri upp „röngu megin“ eða að turninn standi frístandandi, telst ekki örugg notkun og er á ábyrgð notanda.
ZigZag Húsið er einstaklega snjöll og falleg lausn fyrir leiktímann, tilbúið á sekúndum og hægt að brjóta saman á augabragði þegar leiknum líkur. Það passar í hvaða rými sem er og hentar sérstaklega vel fyrir smærri heimili eða þá sem vilja halda leiksvæðinu snyrtilegu.
Stærðir þegar samanbrotið:
Hæð: 74 cm
Breidd: 40 cm
Dýpt: 1 cm
Allt húsið: 200,5 cm
ZigZag húsið samanstendur af 5 viðarplötum og kemur fullsamsett. Ekkert aukahlutabrask – bara leikgleði og ævintýri á augabragði!
Efni: FSC vottaður Birkikrossviður/MDF
Vottun: Varan er með CE-vottun og uppfyllir kröfur evrópska öryggisstaðalsins EN 71-3
Skemmtilegt og endurnýtanlegt LCD skrif- og teiknibretti fyrir börn sem gerir þeim kleift að teikna, skrifa og læra hvar og hvenær sem er.
Bretið er með litríku LCD skjáborði sem hægt er að teikna, skrifa tölur, stafi eða myndir. Með einum hnappi er hægt að eyða öllu af skjánum samstundis, og læsing á bakhlið kemur í veg fyrir að teikning eyðist óvart.
Penninn festist með segli við brettið og er með bandi svo að hann týnist ekki. Handfangið gerir brettið einnig þægilegt í ferðalög, bílferðir eða á veitingastaði.
- Pappírslaus og endurnýtanleg lausn
- Styður sköpun, fínhreyfingar og einbeitingu
- Einfalt í notkun fyrir börn
- Létt og auðvelt að taka með sér
Frábært þroska og ferðaleikfang fyrir skapandi börn sem elska að teikna, skrifa og læra.
Spilið inniheldur 16 viðarílát (8 pör) sem gefa frá sér mismunandi hljóð þegar þeim er hrist. Markmiðið er að hlusta vel og para saman ílát sem gefa sama hljóð.
Ílátin eru fyllt með mismunandi efnum, kúlum og perlum, sem skapa fjölbreytt hljóð og gera leikinn bæði spennandi og lærdómsríkan. Gluggi á botni ílátanna gerir einnig kleift að sjá innihaldið og spila leikinn sjónrænt.
- Leikurinn hjálpar börnum að:
- Þróar heyrnarskyn
- Styrkir minni og einbeitingu
- Æfir samhæfingu handa og augna
- Þjálfar hlustun og takt
Hentar bæði einstaklingsleik eða fjölskylduspil og er einnig vinsælt í þroskaþjálfun og iðjuþjálfun.
Bómullarpoki fylgir með.
Spilið inniheldur 28 spil (14 pör) með mismunandi áferð, efnum og formum. Markmiðið er að finna saman samsvarandi pör með því að snerta yfirborðið, sem gerir leikinn bæði spennandi og þroskandi.
Hægt er að spila leikinn á fleiri en einn hátt, annað hvort með snertiskyni eða sjón og því hentar hann börnum á mismunandi aldri og þroskastigi.
- Þjálfar snertiskyn
- Styrkir minni og einbeitingu
- Þróar fínhreyfingar
- Samhæfingu handa og augna
Hentar vel fyrir börn, fjölskyldur og einnig í þroskaþjálfun eða iðjuþjálfun.
Bómullarpoki fylgir með.
Skemmtilegar egg hristur úr við sem gera börnum kleift að uppgötva hljóð, takt og tónlist á leikandi hátt. Settið inniheldur 5 mismunandi egg, þar sem hvert egg gefur frá sér ólíkt hljóð. Eggin eru úr sterkum og endingargóðum við og eru hönnuð þannig að litlar hendur geti auðveldlega gripið þau.
Fullkomið leikfang til að kynna börnum fyrir tónlist og hljóðum á skemmtilegan hátt og styrkja á sama tíma fínhreyfingar og samhæfingu.
- Takt- og hljóðskynjun
- Fínhreyfingar
- Samhæfingu handa og augna
- Uppgötva mismunandi hljóð
Lúdó Prinsessu er ævintýralegt og barnvænt borðspil! Leikurinn kemur með litríkum prinsessu úr við.
Fullkominn fyrir skemmtilegar leikstundir með fjölskyldunni.
Leikborðið er samanbrjótanlegt og hægt að loka með smellu, frábært í ferðalagið eða til að halda skipulagi!
- 4 leikmenn
- Leikborð úr við
- Innbyggð geymsla fyrir leikhluti
- Örvar talningu og þolinmæði
- Fullkomið ferðaleikfang fyrir fjölskyldur á ferðinni
🎁 Tilvalin gjöf fyrir 4 ára og eldri, bæði falleg og fræðandi!
Lína er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Lína er er í sætum kjól sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Mæja er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Mæja er er í sætum kjól sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Leó er mjúk og falleg dúkka sem hentar fullkomlega fyrir litlar barnahendur. Hún er um 39 cm á hæð og því tilvalin til að knúsa, leika með og taka með sér hvert sem er.
Leó er er í sætum smekkbuxum sem hægt er að klæða úr og í, sem gerir leikinn enn skemmtilegri og hvetur til skapandi hlutverkaleiks.
Það má þrífa dúkkuna í handþvotti.
Fallegt og einfalt Montessori flokkunarleikfang úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að læra liti og æfa fínhreyfingar á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur 6 litríka bikara og 6 viðarfigúrur sem passa við lit bikaranna. Börn geta flokkað figúrurnar eftir lit, sett þær í réttan bikar eða notað þær í frjálsum leik.
Með því að para saman figúrur og bikara þjálfa börn samhæfingu handa og augna, litaskyn og fínhreyfingar á náttúrulegan og skemmtilegan hátt.
- 6 litríkar viðarbikarar
- 6 viðarfigúrur sem passa við litina
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna
- Kennir litagreiningu og flokkun
- Styður rökhugsun og skipulag
- FSC® 100% vottaður viður
Skemmtilegur og fræðandi Montessori flokkunarleikur úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að æfa fínhreyfingar, einbeitingu og rökhugsun á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur 5 litríkar skálar, 15 flokkunarhluti og tvær viðartangir sem börn nota til að grípa og flokka form. Hlutirnir eru í þremur mismunandi formum, hringur, þríhyrningur og stjarna. Hægt er að flokka þá eftir lit, formi eða fjölda.
Með því að nota tangirnar þjálfa börn samhæfingu handa og augna, gripstyrk og nákvæmni, á sama tíma og þau læra liti, form og fyrstu stærðfræðihugtök.
Leikurinn hentar vel bæði heima, í leikskólum og í þroskaþjálfun og býður upp á fjölbreyttar leiðir til að leika og læra.
- 5 litríkar skálar
- 15 flokkunarhlutir (hringir, þríhyrningar og stjörnur)
- 2 viðartangir til að grípa hlutina
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna
- Kennir liti, form og talningu
- Styður rökhugsun, einbeitingu og þolinmæði
- FSC® 100% vottaður viður
Fallegur og vandaður Montessori flokkunarleikur úr FSC-vottuðum við sem hjálpar börnum að læra liti, röðun og samhæfingu á leikandi hátt.
Leikurinn inniheldur viðarplötu með 9 litahólfum og 14 litríkum viðarkúlum sem hægt er að flokka eftir lit, stafla saman eða raða í pýramída. Börn geta prófað mismunandi samsetningar og þannig þróað bæði sköpun, rökhugsun og fínhreyfingar.
Kúlurnar eru sléttar og þægilegar í höndunum, sem gerir leikinn bæði öruggan og skemmtilegan fyrir litlar hendur.
- Montessori flokkunar- og stöflunarleikur
- 14 viðarkúlur í fallegum litum
- Plata með 9 litahólfum
- Þjálfar fínhreyfingar og samhæfingu
- Kennir liti, röðun og talningu
- Styður skapandi leik og tilraunir
- FSC® 100% vottaður viður
Skemmtilegt og klassískt samstæðu spil úr við sem þjálfar minni, einbeitingu og rökhugsun á leikandi hátt. Spilið inniheldur 14 myndapör með krúttlegum dýramyndum sem börn geta parað saman.
Allt settið kemur í viðarkassa með renniloki, sem gerir auðvelt að geyma spilið og taka það með sér í ferðalag.
- Klassískt memory spil fyrir börn
- 14 samstæð pör með fallegum dýramyndum
- Þjálfar minni, einbeitingu og rökhugsun
- Kubbar úr vönduðum við
- Kemur í viðarkassa með renniloki
- Hentar fyrir 1–4 spilara
Kannaðu töfrandi heim norðurslóða!
Þetta fallega 50+ kubbasett úr FSC® vottuðum við færir polarbirni, seli, snæuglu og refi beint inn í leikinn, fullkomið fyrir litla arkitekta sem elska að byggja, stafla og skapa sínar eigin sögur.
Stærðir kubba:
Kassi u.þ.b.: 3 x 3 x 3 cm
Ferhyrningur u.þ.b.: 6 x 3 x 3 cm
Aldur: 12 mánaða+
Fallegt 50 stykkja viðarkubbasett í mjúkum pastel litum ásamt náttúrulegum, ómeðhöndluðum viðarkubbum. Fullkomið til að þjálfa fínhreyfingar, sköpunargáfu og ímyndunarafl barnsins. Í settinu eru sívalningar, teningar, bogadregnir kubbar, ferhyrningar og fleiri form, tilvalið til að læra um lögun og litróf.
Kubbarnir koma í endingargóðu geymslu íláti með loki sem auðveldar bæði tiltekt og flutning.
Stærðir:
Teningur: ca. 3 × 3 × 3 cm
Rétthyrningur: ca. 9 × 3 × 1,5 cm
Aldur: 12 mánaða+
Fallegt og náttúrulegt 50 stykkja kubbasett úr ómeðhöndluðum við sem hentar frá 12 mánaða aldri. Settið inniheldur fjölbreytta kubba í mismunandi formum, sívalninga, ferhyrninga, boga og turna, sem efla skapandi leik, ímyndunarafl og fínhreyfinga
Kubbarnir koma í þægilegum taupoka sem auðveldar geymslu og ferðalög.
Stærðir:
Kubbur (teningur): ca. 3 × 3 × 3 cm
Réttur kubbur: ca. 3 × 3 × 6 cm
